Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guđbjörg Esther G. Vollertsen
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi hjá Háskóla Íslands
  • Um mig: Ég er fćdd 20. desember 1983 og ég á tvćr dćtur. Önnur sem heitir Helga Lilja, fćdd 15. júní 2003 og hin, sem heitir Karen Margrét, fćdd 28. nóvember 2007.

Innskráningar kubbur

Klukkan

Flokkar

Bráđum kemur vor

31. mars 2009 klukkan 13:38

Síðasti dagur í mars er í dag. Þá kemur vonandi bráðum vor. Ég er komin með leið á kuldanum og snjónum, farin að hlakka til að það hlýnar í veðri. Til að vera viss um að fá smá sól og frí förum við öll til Danmerkur 23. maí. Við verðum í þrjár vikur og komum heim 11. júní. Ég hlakka rosalega til að fara. Ég sakna vinkonur mínar, vinir mínir, ströndina, landið í rauninni bara allt þarna. Ég fæ lánaðan bíl á meðan ég er þarna svo ég get ferðast um landið.

Það gengur stundum hægt að skrifa þessa blessaða ritgerð, en ætli þetta tekst ekki að lokum. Mig vantar bara að rannsaka eina rigningu í viðbót og þá er það búið og bara túlkun á niðurstöðunum eftir. Ég get ekki beðið eftir að klára.

Helga Lilja gengur rosalega vel að æfa sig fyrir tónleikana. Karen sefur betur í herbergi með systur sinni. Karen var með eyrnabólgu en hún er farin núna. Hef samt pínu áhyggjur af að hún er alltaf með kvef. Horið rennur stanslaust úr henni en hún virðist samt frísk.

Ég er búin að fara í blóðbankann og fara í blóðprufu. Það virðist vera allt í lagi með mig og ég get farið að gefa blóð í næstu viku. Ég er frekar kvíðin við að þetta sé sárt. Ég er víst ekki rosalega hugrök þegar kemur að nálum.

Ebbi er hjá mér öðru hverju þegar hann er ekki á flakki í pólítík eða að vinna. Það er alltaf gaman að hafa hann hérna. Annars gengur allt bara ágætlega. Alltaf nóg að gera. Enginn breyting þar á.

Guđbjörg Esther G. Vollertsen

Mánuđ síđan síđast.

05. mars 2009 klukkan 22:28
Karen er flutt..
Hún er flutt úr mínu herbergi í herbergi með systur sinni Smile. Það gekk bara mjög vel. Helga Lilja sefur mjög þungt og verður ekki var við það þegar Karen vaknar. Mér finnst meira að segja að Karen sefur betra þarna og vaknar sjaldnar á nóttinni. Ég er mjög ánægð með það.

Ég fór með Karen til læknis á mánudaginn. Mér leist ekki á kvefið í henni. Læknirinn hlustaði á henni, sem Karen var alls ekki ánægð með. Það var ekkert í lungun á henni, en þar sem hún var búin að vera með kvef svona lengi og mikil horrennsli væri hún líklega með nasaholsbolgu. Læknirinn leit í eyrun á henni og hún var komin með eyrnabolgu eina ferðina enn. Þannig að núna er hún á pensilíni. Þetta er í fyrsta skipti sem hún fær svoleiðis. Ég kveið pínu fyrir að þurfa að gefa henni sýklalyfið vegna þess að ég man hversu erfitt það gat verið þegar Helga Lilja var á pensilíni þegar hún var á þessum aldri. En Karen er allt öðruvísi, henni finnst þetta bara gott og heimtar meira þegar skammturinn er búinn Surprised. Mjög fyndið. En þetta einfaldar málin mjög mikið fyrir mig.

Ég hef annars verið að skoða landið aðeins. Farið að skoða Sauðárkrók og Skagaströnd. Mjög fallegt svæðiSmile. Ástæðan fyrir þetta ferðalag er strákur sem ég hef kynnst.

Helga Lilja er að verða meira og meira dugleg að syngja. Hún æfir sig heima og læri tekstanna utanað. Í maí verða síðan tónleika. Hlakka til að sjá hana, efast ekki um að hún á eftir að standa sig með prýði.
Guđbjörg Esther G. Vollertsen