Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guđbjörg Esther G. Vollertsen
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi hjá Háskóla Íslands
  • Um mig: Ég er fćdd 20. desember 1983 og ég á tvćr dćtur. Önnur sem heitir Helga Lilja, fćdd 15. júní 2003 og hin, sem heitir Karen Margrét, fćdd 28. nóvember 2007.

Innskráningar kubbur

Klukkan

Flokkar

Smá ritstífla í gangi

27. október 2008 klukkan 16:02
Vá, það er langt síðan ég skrifaði síðast Surprised.

Það er samt voða lítið búið að gerast..Karen fór í 10 mánaða skoðun og var þá 10 kg og 74 sm. Hún er ekkert búin að þyngjast síðan síðast, ætli það sé ekki vegna þess að hún er farin að skríða út um allt.

Helga Lilja skemmti sér vel á Spáni með pabba sínum og kom brún og sæl heim.

Skólinn er byrjaður aftur og er meira en nóg að gera,, mæli ekki með að taka námskeið samhliða verkefninu, úff það er mikil vinna.

Annars gengur bara vel. Það fer að styttast í afmæli hennar Karen og er ég búin að bóka salinn fyrir það. 1 árs afmæli er náttúrulega stór dagur Laughing.

Jæja, nú er búið að skrifa pínu, ætli það verði þá ekki auðveldara að skrifa næst Wink
Guđbjörg Esther G. Vollertsen