Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guđbjörg Esther G. Vollertsen
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi hjá Háskóla Íslands
  • Um mig: Ég er fćdd 20. desember 1983 og ég á tvćr dćtur. Önnur sem heitir Helga Lilja, fćdd 15. júní 2003 og hin, sem heitir Karen Margrét, fćdd 28. nóvember 2007.

Innskráningar kubbur

Klukkan

Flokkar

Netlaus..

23. mars 2008 klukkan 16:53

Fáranlegt netkerfi hérna.. Maður þarf að fara á netið til þess að fá net á stúdentugörðunum. Það er ekki sama kerfi á görðunum eins og hjá háskólanum þannig að ég þurfti að sækja um nettengingu eina ferðina enn Óákveðinn

Jæja, er ekki best að segja frá Spánarferðina Svalur.


Við fórum með flugvélina um kvöldið 5. mars. 
Við erum öll búnar að koma okkur fyrir í vélinni og Helga Lilja er náttúrulega búin að spjalla við alla á flugvöllinum og ætlaði ekki að hætta núna. Hún fór þess vegna að spjalla við fólkið sem sat fyrir aftan okkur sem var í góðu lagi.. Eftir smá tíma sagði hún glöð í bragði: " Ég er að fara til Spánar...eru þið að fara til Englands? " Það var mikið hlegið og við útskýrðum síðan fyrir henni að allt fólkið í vélinni var að fara á sama stað.. Hún svaraði :" Afhverju ?" hehe hennar svar við öllu Hlæjandi


Við fórum á Playa Flamenca eða Flamenca strönd og Helga Lilja og Logan voru að leika sér í sandinum og rétt stungu tásurnar í vatnið. Það var frekar kalt.


Við fórum á markaði og það var skemmtilegt að skoða allt dótið og að reyna að átta sér á verðinu.

Ég leigði síðan kerru fyrir Karen þar sem það var frekar þungt að labba með hana í burðapoka allan tíman. Hún var samt ekki alltaf ánægð með að vera í kerrunni.. sérstaklega ekki þegar var mjög heitt. Þá vildi hún frekar láta halda á sér.

Við fórum til Torrevieja ( gamla turnið). Þar voru stærri strendur og fleiri túristar. Helga Lilja og Logan fannst skemmtilegast að vera á ströndinni..enda er þetta eins og stór sandkassi með vatni rétt við hliðin á sem hægt er að busla í.


 
Karen smakkaði í fyrsta skipti banana og drakk vatn með.. Henni fannst þetta mjög gott og það fer að styttast í að hún fær að borða banana reglulega og seinna líka annað. Hún er að verða svo stór. Ótrúlegt hvað þessu litlu kríli stækkar hratt.

Það var mjög gaman að fara til Spánar og mjög gott að sleppa aðeins við snjó, slyddu og rigningu. Verð að gera þetta aftur einhvern tíman.

Það er samt gott að koma heim.

Helga Lilja líkar bara vel við sig hérna á Eggertsgötu og er þegar búin að kynnast fullt af börnum hérna. Um leið og hún vaknar um morguninn spyr hún hvort hún má fara fram og leika. Hún fékk lánað hjól hjá nágrannanum sem var án hjálpardekkja og hún kann núna að hjóla á það. Hún er svo svakalega dugleg og þrjósk Hlæjandi.

Við erum síðan að fara í tæpa vikuferð til Danmerkur á laugardaginn. Þetta er í rauninni smá hestarferð hjá mér. Ég er búin að selja Loka (hesturinn minn) og er að athuga hver er búin að fá hann og sjá til þess að honum á eftir að líða vel.

Ég er búin að setja myndband af Karen á youtube..Mjög fyndið

http://www.youtube.com/watch?v=UqdNbYXThT0

Jæja, ég held að ég hef þetta ekki lengra í bili.
Gleðilega páska

Guđbjörg Esther G. Vollertsen

Smá frétt frá Spáni

10. mars 2008 klukkan 17:15
Æðislegt að vera komin til Spánar. Það var pínu kalt fyrstu 2 dagana en síðan kom þetta frábæra veður með 25 stiga hita. Við erum búnar að fara á markaðinn og á ströndina og það er búið að vera rosalega gaman. Helga Lilja og Logan Smári kemur oftast rosalega vel saman og eru búin að leika sér mikið saman.

Ég er búin að fá smá lit sem er mjög gott þar sem ég var að verða gegnsæ Hlæjandi

Það kemur myndir þegar ég kem heim..er ekki með snúruna með mér.
Guđbjörg Esther G. Vollertsen

Flutt..

03. mars 2008 klukkan 08:47
Jæja, þá erum við flutt. Við fluttum allt dótið á fimmtudaginn var og ég ætla að þakka kærlega fyrir aðstoðina. Án ykkar hefði þetta ekki verið hægt Brosandi.
Það er bara mjög gott að búa hérna og gott fyrir Helgu Lilju að vera með sitt eigið herbergi.
Fyrsta kvöldið sá ég ekki Helgu Lilju í klukkutíma eða svo...það var svo mikið dót sem hún þurfti að skoða Hlæjandi.

Í gær kvöldi kom allt í einu svaka hávaði.... Þetta var brunabjallan sem hringdi, en það var enginn eldur...False alarm Brosandi. Helga Lilja og Karen vöknuðu ekkert við þetta en mér var pínu brugðið.

Ég ætla að sýna ykkur myndir af íbúðinni um leið ég er búin að koma mér almennilega fyrir og búin að taka til Hlæjandi.

Eftir 2 daga förum við til Spánar...það er svo stutt þangað til...ummm sól og hiti..Engin frost og snjór í 10 daga... Ég hlakka rosalega til og Helga Lilja líka.
Guđbjörg Esther G. Vollertsen