Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guðbjörg Esther G. Vollertsen
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi hjá Háskóla Íslands
  • Um mig: Ég er fædd 20. desember 1983 og ég á tvær dætur. Önnur sem heitir Helga Lilja, fædd 15. júní 2003 og hin, sem heitir Karen Margrét, fædd 28. nóvember 2007.

Innskráningar kubbur

Klukkan

Flokkar

Allt að gerast..

28. janúar 2008 klukkan 11:20

Já, það lítur út fyrir að ég er komin með íbúð. Það verður æðislegt að fá sitt eigið aftur. Íbúðin er á Eggertsgötu þannig að það er stutt í skólann. Ég fæ afhent í lok febrúar.

Annars er pabbi að koma til landsins, hann kemur á fimmtudaginn og fer aftur á mánudaginn. Alltaf gaman að fá hann í heimsókn.

Helga Lilja er orðin kirtlalaus núna og vonandi þýðir það að henni fer að líða betur og hættir að vera svona oft veik. Hún er allavegana hætt að hrjóta og vera með kæfusvefn sem er kostur.

Sú stutta er alltaf að stækka og kann orðið öll sérhljóðin með g fyrir framan. Hún er síðan byrjuð að segja b og m líka. Það fer að styttast í að hún kann allt stafrófið Hlæjandi

Hún þykist líka að vera að fá tennur, er byrjuð að slefa og naga allt sem hún næ í.




 

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

bra codes

26. janúar 2008 klukkan 21:54
Ég fékk þetta í mail um daginn og þetta setti bros á varinar mínar, vonandi hefur það sömu áhrif á ykkur Brosandi













Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Lífið heldur áfram..

16. janúar 2008 klukkan 14:30

Ég fór með litlu skvísuna í 6 vikna skoðun í dag, hún er að vísu 7 vikna en það skiptir ekki öllu máli. Hún var vigtuð og mæld... og vigtin sýndi 5.800 g og hún er orðin 59 sm löng. Það þýðir að hún er búin að þyngjast um tæp 2 kg og stækkað um 7 sm á 7 vikum!!! Vá segir ég bara!! Hún pissaði síðan á mæliborðinu svo allt var á floti Hlæjandi.
Læknirinn skoðaði hana og var bara ánægður. Þannig að þetta gekk bara vel.

Ég er búin að fá allar einkunnirnar og þetta lítur bara vel út, er með meðaleinkunnina 7,5 sem er alls ekki slæmt.

Annars er búið að panta miða til Spánar, við förum 5. mars og verðum í 10 daga. Það verður gott að komast aðeins í sólina og líka að sjá húsið hans Bergs afa.
En það þarf víst að hafa stelpurnar í bandi..

http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/01/16/hvarf_5_ara_spaenskrar_stulku_rannsakad/

Ekki væri gaman að lenda í svona Fýldur 
Jæja, þetta var víst allt í bili Brosandi

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

update..

11. janúar 2008 klukkan 17:50
Jæja, þá er maður kominn aftur heim eftir stutta ferð til Danmerkur. Afi var jarðarður á þriðjudag 8. janúar. Þetta var mjög fallegt.

Ég ætla að þakka öllum kærlega fyrir samúðarkveðjurnar.

Sú stutta tók ferðina mjög vel og á leiðinni út svaf hún næstum því alla leiðina í flugvélinni. Margir sáu litlu skvísuna og dáðist af hvað hún væri góð en Helga Lilja var sárt saknað í þessari ferð. Hún fær að koma með næst þegar ég fer eitthvað.
 
Í dag fórum við í húsdýragarðinum. Það var mjög gaman og veðrið var til fyrirmyndar. Við sáum þegar nautið fór í göngutúr... það er verið að venja hann við að vera teymdur og gekk það eiginlega bara ágætlega. Við fengum okkur heitt kakó með rjóma vegna þess að það var pínu kalt. Næstum því öll dýrin voru inni, bara hestarnir, refurinn og hreindýrin voru úti.

Nokkrar myndir úr ferðinni og húsdýragarðinum:
flugvöllur

sofandi skvísa

skvísa á hestbaki

Helga Lilja
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Fljótt getur gleði breyst í sorg..

03. janúar 2008 klukkan 12:10
Það er með sorg í hjarta að þessi færsla er skrifuð..

Með einu símtali breyttist gleði í sorg... Afi minn í Danmörku er dáinn, hann dó úr hjartaáfalli. Hann var að labba í miðborginni í Vejle með ömmu þegar hann allt í einu hneig niður. Hann var fluttur á spítala en ekki tókst að lífga hann við.
Þetta var míkið áfall þar sem hann er ekki búinn að vera veikur og hann var alltaf kátur og hress.

Ég læt ljóð fylgja með eftir honum Hallgrími Péturssyni sem mér finnst lýsa ágætlega hvernig mér líður.

Dauðinn má svo með sanni

samlíkjast, þykir mér,

slyngum þeim sláttumanni,

er slær allt, hvað fyrir er.

Grösin og jurtir grænar,

glóandi blómstrið frítt,

reyr, stör sem rósir vænar

reiknar hann jafnfánýtt.

 

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Nýtt ár er byrjað..

01. janúar 2008 klukkan 23:44
Kannski ég ætti að gera annáll eins og margir aðrir gera, en ég held ég ætla bara að segja frá því sem stendur upp úr á árinu 2007.
1. Að eignast aðra dóttur
2. Að flytja aftur til Íslands
3. Bs-gráðann

Þetta var miklu fljótlegra Hlæjandi

30. janúar fór ég og sú stutta á Selfoss og við vorum þar um áramótin. Ég og Kristín horfðum á Næturvaktinn og kláruðum næstum því öllum þáttunum á einu kvöldi. Þetta voru bara ágætis þætti, karakterinn sem Jón Gnarr leikir er nett klikkaður og ekki hefði ég þraukað í vinnu hjá honum Brosandi.
 
Áramótaskaupið í ár var frekar dauft og það var langt á milli þess sem hægt var að hlæja að.

Jæja, þetta var frekar stutt verð kannski í stuði seinnaGlottandi
Guðbjörg Esther G. Vollertsen