Uss, meira blogg-leti er ţetta...
Svona er þetta.. Tíminn flýgur afstað og allt í einu er komið jól ![]()
Ok ekki alveg en það fer að styttast í það. Þá byrjar jólastressið... jólagjafastressið..alltaf sama sagan. Maður veit að jólinn koma á hverju ári í desember, samt verður maður alltaf jafnt hissa þegar desember kemur... Ha, er komið desember.... og ég er ekki búin að kaupa neina jólagjafir... Best að dríva sér út og reyna að eyða jafn miklum pening jafn hratt og hægt er ![]()
Hugsa sér ef allir myndi byrja að kaupa jólagjafirnar í janúar á útsölu í staðinn og slaka á og baka smákökur í desember, miklu jólalegri en þetta stress sem er núna.
Littla krílið hefur komið sér vel fyrir í bumbunni og ætla sko ekkert að koma út. Ekki byrjar þetta vel, ekki einu sinni fædd og strax farið að óhlýðnast mömmu sinni... Algjör stríðnispúki, ætti svo sem ekki að koma á óvart þar sem þetta er í ættinni ![]()
Ég er samt orðin frekar leið á að líta út eins og strandaður hvalur, og labba eins og önd. I want my body back !!
Annars er allt komið á fullt í skólanum. Kennaranna er nefnilega svo góðir að hafa verkefnaskil á sama tíma og það í nóvember þegar maður er orðin verulega þreytt og það er dimmt úti. Sem betur fer gengur vel og flest verkefnin eru skemmtileg. Ég ætla samt aldrei að gera þetta aftur...Að vera ólétt og í skóla á sama tíma.. þetta er bara allt of mikil vinna.
Jæja, ætli ég blogga ekki pínu þegar ég er búin að eiga og búin í prófunum.
