Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guðbjörg Esther G. Vollertsen
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi hjá Háskóla Íslands
  • Um mig: Ég er fædd 20. desember 1983 og ég á tvær dætur. Önnur sem heitir Helga Lilja, fædd 15. júní 2003 og hin, sem heitir Karen Margrét, fædd 28. nóvember 2007.

Innskráningar kubbur

Klukkan

Flokkar

Alltaf á ferðinni

05. apríl 2008 klukkan 19:10
Já, ég er víst alltaf á ferðinni. En það er best að nýta tímann á meðan ég er í fæðingarorlofi.
Við vorum að koma heim frá Danmörku. Ég fékk að fara á hestbak á hverjum degi og það var ýndistlegt. Ég hef ekki farið á bak síðan í ágúst þannig að ég var með pínu hasperrur í byrjun.
Helga Lilja fékk líka að fara á hestbak, oftast stuttar ferðir en eitt skiptið fékk hún að fara langt. Hún var hæstaánægð með það og sagði að þetta væri hennar hesturBrosandi. Ég verð víst að finna hest handa henni og mér.



Helga Lilja heimsótti líka gamla leikskólann sinn og var frekar svekkt yfir að Brynhild væri þarna ekki en þær voru bestu vinkonur.
Við fórum í dýragarðinn og skoðuðum öll dýrin. Það var skemmtilegt eins og alltaf.

Annars lítur út fyrir að ég verð með nóg að gera næsta árið..Ég verð að vinna meistaraverkefni og líka með fáein fög með þar sem venjan er að klára fögin fyrst og síðan verkefnið..Ég geri þetta bara ekki eins og flestar aðrir. Þetta verkefni með orkuveituna er bara of gott tækifæri til þess að láta frá sér út af svona smáaðtriði.

Karen stækkar svo hratt og er í rauninni að breytast í michelin manninn Hlæjandi fellingar alls staðar.
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Netlaus..

23. mars 2008 klukkan 16:53

Fáranlegt netkerfi hérna.. Maður þarf að fara á netið til þess að fá net á stúdentugörðunum. Það er ekki sama kerfi á görðunum eins og hjá háskólanum þannig að ég þurfti að sækja um nettengingu eina ferðina enn Óákveðinn

Jæja, er ekki best að segja frá Spánarferðina Svalur.


Við fórum með flugvélina um kvöldið 5. mars. 
Við erum öll búnar að koma okkur fyrir í vélinni og Helga Lilja er náttúrulega búin að spjalla við alla á flugvöllinum og ætlaði ekki að hætta núna. Hún fór þess vegna að spjalla við fólkið sem sat fyrir aftan okkur sem var í góðu lagi.. Eftir smá tíma sagði hún glöð í bragði: " Ég er að fara til Spánar...eru þið að fara til Englands? " Það var mikið hlegið og við útskýrðum síðan fyrir henni að allt fólkið í vélinni var að fara á sama stað.. Hún svaraði :" Afhverju ?" hehe hennar svar við öllu Hlæjandi


Við fórum á Playa Flamenca eða Flamenca strönd og Helga Lilja og Logan voru að leika sér í sandinum og rétt stungu tásurnar í vatnið. Það var frekar kalt.


Við fórum á markaði og það var skemmtilegt að skoða allt dótið og að reyna að átta sér á verðinu.

Ég leigði síðan kerru fyrir Karen þar sem það var frekar þungt að labba með hana í burðapoka allan tíman. Hún var samt ekki alltaf ánægð með að vera í kerrunni.. sérstaklega ekki þegar var mjög heitt. Þá vildi hún frekar láta halda á sér.

Við fórum til Torrevieja ( gamla turnið). Þar voru stærri strendur og fleiri túristar. Helga Lilja og Logan fannst skemmtilegast að vera á ströndinni..enda er þetta eins og stór sandkassi með vatni rétt við hliðin á sem hægt er að busla í.


 
Karen smakkaði í fyrsta skipti banana og drakk vatn með.. Henni fannst þetta mjög gott og það fer að styttast í að hún fær að borða banana reglulega og seinna líka annað. Hún er að verða svo stór. Ótrúlegt hvað þessu litlu kríli stækkar hratt.

Það var mjög gaman að fara til Spánar og mjög gott að sleppa aðeins við snjó, slyddu og rigningu. Verð að gera þetta aftur einhvern tíman.

Það er samt gott að koma heim.

Helga Lilja líkar bara vel við sig hérna á Eggertsgötu og er þegar búin að kynnast fullt af börnum hérna. Um leið og hún vaknar um morguninn spyr hún hvort hún má fara fram og leika. Hún fékk lánað hjól hjá nágrannanum sem var án hjálpardekkja og hún kann núna að hjóla á það. Hún er svo svakalega dugleg og þrjósk Hlæjandi.

Við erum síðan að fara í tæpa vikuferð til Danmerkur á laugardaginn. Þetta er í rauninni smá hestarferð hjá mér. Ég er búin að selja Loka (hesturinn minn) og er að athuga hver er búin að fá hann og sjá til þess að honum á eftir að líða vel.

Ég er búin að setja myndband af Karen á youtube..Mjög fyndið

http://www.youtube.com/watch?v=UqdNbYXThT0

Jæja, ég held að ég hef þetta ekki lengra í bili.
Gleðilega páska

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Smá frétt frá Spáni

10. mars 2008 klukkan 17:15
Æðislegt að vera komin til Spánar. Það var pínu kalt fyrstu 2 dagana en síðan kom þetta frábæra veður með 25 stiga hita. Við erum búnar að fara á markaðinn og á ströndina og það er búið að vera rosalega gaman. Helga Lilja og Logan Smári kemur oftast rosalega vel saman og eru búin að leika sér mikið saman.

Ég er búin að fá smá lit sem er mjög gott þar sem ég var að verða gegnsæ Hlæjandi

Það kemur myndir þegar ég kem heim..er ekki með snúruna með mér.
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Flutt..

03. mars 2008 klukkan 08:47
Jæja, þá erum við flutt. Við fluttum allt dótið á fimmtudaginn var og ég ætla að þakka kærlega fyrir aðstoðina. Án ykkar hefði þetta ekki verið hægt Brosandi.
Það er bara mjög gott að búa hérna og gott fyrir Helgu Lilju að vera með sitt eigið herbergi.
Fyrsta kvöldið sá ég ekki Helgu Lilju í klukkutíma eða svo...það var svo mikið dót sem hún þurfti að skoða Hlæjandi.

Í gær kvöldi kom allt í einu svaka hávaði.... Þetta var brunabjallan sem hringdi, en það var enginn eldur...False alarm Brosandi. Helga Lilja og Karen vöknuðu ekkert við þetta en mér var pínu brugðið.

Ég ætla að sýna ykkur myndir af íbúðinni um leið ég er búin að koma mér almennilega fyrir og búin að taka til Hlæjandi.

Eftir 2 daga förum við til Spánar...það er svo stutt þangað til...ummm sól og hiti..Engin frost og snjór í 10 daga... Ég hlakka rosalega til og Helga Lilja líka.
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

það tókst að redda bíl..

28. febrúar 2008 klukkan 13:21
bara láta vita að það tókst að redda sendibíl Brosandi 
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

þriggja mánaða skvísa..

28. febrúar 2008 klukkan 10:03

Já, litla skvísan hún Karen er þriggja mánaða í dag. Hún er orðin 63,5 sm löng og 7.245 g, svaka stór Hlæjandi. Annars fór hún í fyrstu bólusetningunni í gær og gekk rosalega vel. Hún setti bara smá skeifu við sprautuna annars ekkert. Hún var svolítið óvær um kvöldið en engin hiti þannig að það var bara í fínu lagi.

Jæja, síðan er það flutningurinn. Meira vesenið getur það verið að flytja smá búslóð. Vildi helst leiga stóran bíl en það var allt uppbókað eða þá með bílstjóra. Þannig að það varð bara að leiga kerru í staðinn og bíða með stærstu hlutina.

Annars er bíllinn minn loksins kominn í lag.. það var bara smávegis að honum.. stjórnboxið fyrir glóðurkertin var bilað.. ekki skrýtið að honum fannst erfitt að fara í gang þegar kalt var í veðri Hlæjandi.


Jæja, ég kveð í bili.. þarf að ná í bílinn og klára að setja í kassa.

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

mála... þarf þess líka?

22. febrúar 2008 klukkan 10:11
já, svona er þetta... verð að bíða aðeins lengur eftir íbúðina vegna þess að það þarf að mála hana. Ég fæ afhent ef ég er heppin seinni partinn í dag eða á mánudaginn. Þannig að það er enginn flutningur um helgina Fýldur

Annars er voða lítið að frétta....Helga Lilja var veik í vikunni.. vonandi þýðir það ekki að það var önnur ástæða fyrir veikindunum en kirtlanna.
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Svaka bloggleti er þetta

12. febrúar 2008 klukkan 14:08

eða kannski hefur ekkert gerst síðan ég bloggaði síðast Hlæjandi. Ég er að vísu orðin pínu þreytt á veðrinu vegna þess að það er ekki hægt að fara út með vagninn í svona roki, rigningu, snjókomu og annað leiðinlegt.
 
Ég er byrjuð að pæla í skírn á sú stuttu. Hún er að vísu komin með nafn, en það er víst best að skíra hana. En hvenær á skírnin að vera, í hvaða kirkju, hvar á veislan að vera og hversu mörgum á að bjóða??? Ég býst við að þetta verður frekar lítil veisla.

Annars styttist í afhendingu á íbúðina og ég er farin að hlakka til að flytja. Mig vantar að vísu enn nokkur húsgögn en það hlýtur að reddast einhvern veginn.

Ég las hjá systur minni frekar fróðleg bloggfærslu um stafsetningu og málfræði. Ég verð bara að viðurkenna, eins og flestir vita, að ég er frekar léleg í íslensk málfræði. Að mínu mati er það mest þágufall og þolfall sem er að flækjast fyrir mér en ég reyni að bæta mig. En hins vegar er ég mjög góð í stafsetningu Brosandi.

Sú stutta dafnar og stækkar eins og hún á að gera. Hún er orðin rúmlega 6 kg og er farin að hlæja. Hún hlær t.d. þegar ég held henni fyrir ofan hausnum á mér og er að leika flugvél. Mjög fyndið og sætt.



Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Allt að gerast..

28. janúar 2008 klukkan 11:20

Já, það lítur út fyrir að ég er komin með íbúð. Það verður æðislegt að fá sitt eigið aftur. Íbúðin er á Eggertsgötu þannig að það er stutt í skólann. Ég fæ afhent í lok febrúar.

Annars er pabbi að koma til landsins, hann kemur á fimmtudaginn og fer aftur á mánudaginn. Alltaf gaman að fá hann í heimsókn.

Helga Lilja er orðin kirtlalaus núna og vonandi þýðir það að henni fer að líða betur og hættir að vera svona oft veik. Hún er allavegana hætt að hrjóta og vera með kæfusvefn sem er kostur.

Sú stutta er alltaf að stækka og kann orðið öll sérhljóðin með g fyrir framan. Hún er síðan byrjuð að segja b og m líka. Það fer að styttast í að hún kann allt stafrófið Hlæjandi

Hún þykist líka að vera að fá tennur, er byrjuð að slefa og naga allt sem hún næ í.




 

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

bra codes

26. janúar 2008 klukkan 21:54
Ég fékk þetta í mail um daginn og þetta setti bros á varinar mínar, vonandi hefur það sömu áhrif á ykkur Brosandi













Guðbjörg Esther G. Vollertsen