Páskar
Jæja, það styttist í páskana. Ég er þó búin að taka smá forskot á gleðina og smakkað á páskaeggið sem ég keypti.
Karen, mamma og ég fórum austur á Hvolsvöll í dag. Ágætt að fara í smá bíltúr út í sveit. Veðrið var að vísu frekar furðulegt; sól, rigning, slydda allt blandað vel saman. Planið var að fara á hestbak en það var frestað til um næstu helgi. Ef ég kemst ekki á bak þá endar með því að ég leigi mér hest til að fara á. Ég er svo komin með fráhvarfseinkenni!!
Fyrir nokkru fór ég á foreldrafund í leikskólanum hennar Karen. Fundurinn gekk mjög vel og höfðu þeir bara jákvætt að segja. Þau lýstu Karen svona;
Ákveðin, læt ekki vaða yfir sig og læt í sér heyra þegar hún er óánægð.
Dramadrottning, þegar eitthvað óréttlátt gerist að hennar mati græt hún hátt, þó oftast án tára.
Góð við hina krakkana, góð samskipti við fullorðna jafnt sem börn. Óhrædd við að biðja um knús þegar hún þarf á því að halda.
Mjög aldursamsvarandi, bæði hreyfigeta og þroska. Hún hefur gaman af því að púsla, en finnst leiðinlegt að mála með fingurmálningu vegna þess að þá verður hún skítug á puttana. Hefur ekki rosalega gaman af því að vera úti, það er svo erfitt að hreyfa sig. Hún er með innri klukku og líður best þegar hlutina gerist í réttri röð á réttum tíma.
Það er náttúrulega alltaf gaman að heyra að dóttir sín sé góð og dugleg stelpa og að henni líður vel í leikskólanum.
Annars er hún byrjuð að príla upp og ofan í allt. Fer ofan í dótakassann sinn, fer upp á klósettið og týnir pappírinn af klósettrúllunni ef maður er ekki nógu fljótur að taka hana í burtu. Um daginn tókst henni að príla upp í baðið. Hún stækkar svo hratt að það er ótrúlegt að fylgjast með.
Um næstu helgi ætlum við stelpurnar að fara í bústað. Það verður svo gaman!!
Jæja, nóg í bili.
