Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guðbjörg Esther G. Vollertsen
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi hjá Háskóla Íslands
  • Um mig: Ég er fædd 20. desember 1983 og ég á tvær dætur. Önnur sem heitir Helga Lilja, fædd 15. júní 2003 og hin, sem heitir Karen Margrét, fædd 28. nóvember 2007.

Innskráningar kubbur

Klukkan

Flokkar

sumarið að verða búið??

27. júlí 2009 klukkan 15:41
Alltaf svo mikið að gera að maður hef aldrei frið til að skrifa bloggfærslu Smile.
Er að rembast við að klára meistari-ritgerðina mína. Þetta gengur stundum vel og stundum illa..stundum er andinn algjörlega búin að yfirgefa mann og maður dreymir sig langt í burtu. Gullrótinn er samt að þegar þetta er búið er skólinn að klárast og maður get snúið sér að öðru..að vinna.

Stelpurnar eru núna í sumarfríi og þá er stöðugt fjör á heimilinu. Sem betur fer eru eitthvað að krökkum hérna sem Helga Lilja get leikið við, annars þurfti líklega að leggja mig inn á hæli þegar sumarfríið væri búið Tongue out.

Helga Lilja er farin að hlakka til að byrja í skóla..Þetta verður mjög spennandi, en mér finnst ég allt í einu orðin eitthvað gömul. Ég á barn í grunnskóla Surprised, hvernig gerðist þetta, hvernig leið tíminn svona hratt? Karen er líka að fara að byrja á Mánagarði, sem er leikskólinn sem Helga Lilja var á. Hún er að verða tveggja ára eftir nokkra mánuði. Kann fullt af orðum og þrjósk eins og ég veit ekki hvað. Hvað varð um litla engilinn minnLaughing hún breyttist víst í stríðnispúka.

Fékk um daginn heimsókn frá Danmörku. Einn vinur minn var hérna í 3 daga og þá var landið skoðað. Fórum á Akureyri og skoðuðum aðeins umhverfið þar og fórum líka gullna hringinn ( Gullfoss, Geysir og þingvellir). Við skemmtum okkur vel og var hann mjög hissa á hversu fegurt landið er.

Á morgun kemur nýr hópur frá Dk. Pabbi og frændi, með konu og barn. Þau ætla líka að ferðast um landið, líklega Kjölur og meira. Það verður líka farið til Dúnu á hestbak, hún er með hestaleiguna Land og hestar á Skeiðum.

Annars gengur bara voða vel. Alltaf nóg að gera og alltaf fjör.
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Það er komið sumar!!

20. maí 2009 klukkan 09:00
Það er aldeilis búið að vera blíðan undanfarið. Sól og hiti. Ég er að breytast í súkkulaði, allavega á litin.
Annars er alltaf nóg að gera.

Helga Lilja kláraði söngskólann sinn og það voru haldnir tónleikar. Hún stóð sig rosalega vel og var eiginlega ekkert feimin. Það hefði líka verið óvenjulegt, en flott hjá henni að geta sungið fyrir framan fullan sal af fólki.

Karen er alltaf að læra ný og ný orð. Kannski verð hún bara eins og mamma sín og verð al-talandi um tveggja ára. Þá verður sko engin friður með tvær blaðurskjóður að keppast við að segja sem mest Laughing.

Það er að styttast í Danmerkur ferðina. Við förum á laugardaginn 23. maí og komum aftur 3 vikum síðar eða 11. júní. Það er ströng dagskrá, svo margt sem þarf að gera og marga sem þarf að hitta.

Ég er síðan búin að fá staðfestingu á að ég fæ að halda ræðu á ráðstefnunni í Danmörku í miðjan nóvember. Það verður mjög spennandi og góð æfing að halda ræðu fyrir nokkur hundruð manns.

Þetta var víst það helsta. Ég set inn myndir og ferðasögu frá Dk á meðan við erum úti á facebook. Þá er hægt að fylgjast með hvað við erum að gera.
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Páskar

04. apríl 2009 klukkan 21:27

Jæja, það styttist í páskana. Ég er þó búin að taka smá forskot á gleðina og smakkað á páskaeggið sem ég keypti.

Karen, mamma og ég fórum austur á Hvolsvöll í dag. Ágætt að fara í smá bíltúr út í sveit. Veðrið var að vísu frekar furðulegt; sól, rigning, slydda allt blandað vel saman. Planið var að fara á hestbak en það var frestað til um næstu helgi. Ef ég kemst ekki á bak þá endar með því að ég leigi mér hest til að fara á. Ég er svo komin með fráhvarfseinkenni!!

Fyrir nokkru fór ég á foreldrafund í leikskólanum hennar Karen. Fundurinn gekk mjög vel og höfðu þeir bara jákvætt að segja. Þau lýstu Karen svona;
Ákveðin, læt ekki vaða yfir sig og læt í sér heyra þegar hún er óánægð.
Dramadrottning, þegar eitthvað óréttlátt gerist að hennar mati græt hún hátt, þó oftast án tára.
Góð við hina krakkana, góð samskipti við fullorðna jafnt sem börn. Óhrædd við að biðja um knús þegar hún þarf á því að halda.
Mjög aldursamsvarandi, bæði hreyfigeta og þroska. Hún hefur gaman af því að púsla, en finnst leiðinlegt að mála með fingurmálningu vegna þess að þá verður hún skítug á puttana. Hefur ekki rosalega gaman af því að vera úti, það er svo erfitt að hreyfa sig. Hún er með innri klukku og líður best þegar hlutina gerist í réttri röð á réttum tíma.  

Það er náttúrulega alltaf gaman að heyra að dóttir sín sé góð og dugleg stelpa og að henni líður vel í leikskólanum.

Annars er hún byrjuð að príla upp og ofan í allt. Fer ofan í dótakassann sinn, fer upp á klósettið og týnir pappírinn af klósettrúllunni ef maður er ekki nógu fljótur að taka hana í burtu. Um daginn tókst henni að príla upp í baðið. Hún stækkar svo hratt að það er ótrúlegt að fylgjast með.

Um næstu helgi ætlum við stelpurnar að fara í bústað. Það verður svo gaman!!

Jæja, nóg í bili.

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Bráðum kemur vor

31. mars 2009 klukkan 13:38

Síðasti dagur í mars er í dag. Þá kemur vonandi bráðum vor. Ég er komin með leið á kuldanum og snjónum, farin að hlakka til að það hlýnar í veðri. Til að vera viss um að fá smá sól og frí förum við öll til Danmerkur 23. maí. Við verðum í þrjár vikur og komum heim 11. júní. Ég hlakka rosalega til að fara. Ég sakna vinkonur mínar, vinir mínir, ströndina, landið í rauninni bara allt þarna. Ég fæ lánaðan bíl á meðan ég er þarna svo ég get ferðast um landið.

Það gengur stundum hægt að skrifa þessa blessaða ritgerð, en ætli þetta tekst ekki að lokum. Mig vantar bara að rannsaka eina rigningu í viðbót og þá er það búið og bara túlkun á niðurstöðunum eftir. Ég get ekki beðið eftir að klára.

Helga Lilja gengur rosalega vel að æfa sig fyrir tónleikana. Karen sefur betur í herbergi með systur sinni. Karen var með eyrnabólgu en hún er farin núna. Hef samt pínu áhyggjur af að hún er alltaf með kvef. Horið rennur stanslaust úr henni en hún virðist samt frísk.

Ég er búin að fara í blóðbankann og fara í blóðprufu. Það virðist vera allt í lagi með mig og ég get farið að gefa blóð í næstu viku. Ég er frekar kvíðin við að þetta sé sárt. Ég er víst ekki rosalega hugrök þegar kemur að nálum.

Ebbi er hjá mér öðru hverju þegar hann er ekki á flakki í pólítík eða að vinna. Það er alltaf gaman að hafa hann hérna. Annars gengur allt bara ágætlega. Alltaf nóg að gera. Enginn breyting þar á.

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Mánuð síðan síðast.

05. mars 2009 klukkan 22:28
Karen er flutt..
Hún er flutt úr mínu herbergi í herbergi með systur sinni Smile. Það gekk bara mjög vel. Helga Lilja sefur mjög þungt og verður ekki var við það þegar Karen vaknar. Mér finnst meira að segja að Karen sefur betra þarna og vaknar sjaldnar á nóttinni. Ég er mjög ánægð með það.

Ég fór með Karen til læknis á mánudaginn. Mér leist ekki á kvefið í henni. Læknirinn hlustaði á henni, sem Karen var alls ekki ánægð með. Það var ekkert í lungun á henni, en þar sem hún var búin að vera með kvef svona lengi og mikil horrennsli væri hún líklega með nasaholsbolgu. Læknirinn leit í eyrun á henni og hún var komin með eyrnabolgu eina ferðina enn. Þannig að núna er hún á pensilíni. Þetta er í fyrsta skipti sem hún fær svoleiðis. Ég kveið pínu fyrir að þurfa að gefa henni sýklalyfið vegna þess að ég man hversu erfitt það gat verið þegar Helga Lilja var á pensilíni þegar hún var á þessum aldri. En Karen er allt öðruvísi, henni finnst þetta bara gott og heimtar meira þegar skammturinn er búinn Surprised. Mjög fyndið. En þetta einfaldar málin mjög mikið fyrir mig.

Ég hef annars verið að skoða landið aðeins. Farið að skoða Sauðárkrók og Skagaströnd. Mjög fallegt svæðiSmile. Ástæðan fyrir þetta ferðalag er strákur sem ég hef kynnst.

Helga Lilja er að verða meira og meira dugleg að syngja. Hún æfir sig heima og læri tekstanna utanað. Í maí verða síðan tónleika. Hlakka til að sjá hana, efast ekki um að hún á eftir að standa sig með prýði.
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

blogga oftar...

03. febrúar 2009 klukkan 13:52

Rosalega er erfitt að taka sér tíma til þess að blogga!! Það er margt búið að gerast. Sem betur fer er til Facebook svo að allir geta fylgst með án mikillar fyrirhafnar.
Ég náði prófunum, sem er mjög gott. Ég sendi úrdrátt til Danmörku og er líklega að fara á ráðstefnu í Nóvember. Skólinn er kominn alveg á fullt og ég er að drukkna í vinnu þó ég sé bara að vinna í verkefninu.

Karen er farin að labba alveg sjálf. Hún kann meira að segja að standa upp á miðju gólfi án hjálpar. Þannig að nú er friðurinn endanlega búinn.

Helga Lilja er byrjuð í söngskóla og líkar henni vel. Ég læri líka löginn í leiðinni vegna þess að hún þarf að æfa sig í að syngja heima.

Vegna þess að það fer að styttast í að ég verð þrítug og ég þekki marga sem eru 30+ kemur smá huggun;

This is for all you girls 30 years and over... and for those who are turning 30, and for those who are scared of moving into their 30's..AND for guys who are scared of girls over 30!!!!.. This was written by Andy Rooney from CBS 60 Minutes.

 

Andy Rooney says:

 As I grow in age, I value women who are over 30 most of all. Here are just a few reasons why:

 A woman over 30 will never wake you in the middle of the night to ask, 'What are you thinking?' She doesn't care what you think.

 If a woman over 30 doesn't want to watch the game, she doesn't sit around whining about it. She does something she wants to do. And, it's usually something more interesting.

 A woman over 30 knows herself well enough to be assured in who she is, what she is, what she wants and from whom. Few women past the age of 30 give a damn what you might think about her or what she's doing.

 Women over 30 are dignified. They seldom have a screaming match with you at the opera or in the middle of an expensive restaurant. Of course, if you deserve it, they won't hesitate to shoot you, if they think they can get away with it.

 Older women are generous with praise, often undeserved. They know what it's like to be unappreciated.

 A woman over 30 has the self-assurance to introduce you to her women friends. A younger woman with a man will often ignore even her best friend because she doesn't trust the guy with other women. Women over 30 couldn't care less if you're attracted to her friends because she knows her friends won't betray her.

 Women get psychic as they age. You never have to confess your sins to a woman over 30. They Always Know.

 A woman over 30 looks good wearing bright red lipstick. This is not true of younger women.

 Once you get past a wrinkle or two, a woman over 30 is far sexier than her younger counterpart.

 Older women are forthright and honest. They'll tell you right off if you are a Jerk if you are acting like one! You don't ever have to wonder where you stand with her.

 Yes, we praise women over 30 for a multitude of reasons. Unfortunately, it's not reciprocal. For every stunning, smart, well-coiffed hot woman of 30+, there is a bald, paunchy relic in yellow pants making a fool of himself with some 22-year-old waitress

 Ladies, I apologize. For all those men who say, 'Why buy the cow when you can get the milk for free'. Here's an update for you.

 Nowadays 80% of women are against marriage, why? Because women realize it's not worth buying an entire Pig, just to get a little sausage!

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Nýtt ár..

05. janúar 2009 klukkan 10:27

Árið 2008 er liðið. Þetta er búið að vera ágætis ár. Vonandi ber 2009 eitthvað skemmtilegt með sér.

Fríið er búið, skolinn tekur við á ný. Í rauninni ágætt, er búin að vera allt of löt í þessu fríi.


Helga Lilja sagði þetta um daginn;

Amma mín segir stundum við mig að ég sé lítið ljós. En ég er ekki ljós, ég lýs ekki í myrkri Laughing.

Guðbjörg Esther G. Vollertsen

prófin búnar..

17. desember 2008 klukkan 13:02
Fór í síðasta prófið í morgun..Tímaraðagreiningu..Mjög leiðinleg stærðfræði áfangi. Prófið gekk ágætlega held ég, það er svo erfitt að spá fyrir um svona. Það kemur bara í ljós í janúar. Vonandi náði ég, það væri frekar leiðinlegt að þurfa að taka þetta próf aftur.

Þannig að ég er eiginlega komin í jólafríi. Ég verð samt að vinna í verkefninu þar sem ég þarf að undirbúa fund með Or og skrifa úrdrátt svo ég get farið á "conference" á næsta ári. Þetta þarf að vera tilbúið fyrir miðjan janúar.

Það er jólaball í leikskólanum hjá Karen ídag og er ég að fara þangað á eftir. Það verður spennandi að sjá hvort hún verður hrædd við jólasveininn.

Annars fórum við Ingó á jólahlaðborð á föstudaginn var. Það var mjög gaman. Smá mynd af okkur;



Jæja, kannski ætti maður að fara að skrifa jólakort :)
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Jæja, það er komið desember..

12. desember 2008 klukkan 10:05
Reyndar eru næstum tvær vikur síðan desember byrjaði...Tíminn er svo fljótur að líða.

Það er nóg að gera. Er búin að fara í eitt próf og á eitt eftir. Þegar ég er ekki að læra undir próf er ég að gera verkefni. Ég hef að vísu tekið mig smá tíma til að baka nokkrar smákökur. Á samt eftir að byrja á jólabakstrinum, jólakortunum og klára jólagjafirnar!! Það verður sko nóg að gera eftir 17. des en síðasta prófið er þá. 

Síðan fer líka að styttast í afmælið mitt..verð 25 ára, nálgast þrítugt með hröðum skrefum  Surprised.

Fyrsti jólasveininn kom í nótt, Stekkjastaur. Helga Lilja skrifaði honum bréf;

Elsku Stekkjastaur
Má ég fá úr og sleikjó

Hún er svo skemmtileg. Hún fékk að vísu ekkert úr frá Stekkjastauri en sagði mér að jólasveininn var búin að taka bréfið hennar þannig að kannski var Stekkjastaur ekki með neitt úr í pokanum sínum og kannski Kertasníkir myndi gefa henni úr í staðinn Laughing.

Jæja, það er helgi framundan, ekki slæmt.

Best að fara að læra aftur..
Guðbjörg Esther G. Vollertsen

Hún á afmæli í dag...

28. nóvember 2008 klukkan 10:14
Hún á afmæli í dag hún Karen, hún á afmæli í dag....
Tíminn er svo sannarlega fljótur að líða. Litla skvísan bara orðin eins árs.
Hún er búin að læra svo margt. Hún stendur upp allsstaðar og fiktar í öllu sem hún nær í. Um leið og hurð opnast er hún farin. Hún er rosalega montin með sig þegar hún labbar með einhverjum haldandi í höndunum á sér. Hún blaðrar út í eitt, segir sögur og reynir að syngja. Klappar og vinkar og margt annað.

Já, það er svo sannarlega gaman að vera orðin eins árs.
Guðbjörg Esther G. Vollertsen